Drea's Diary

Andrea Katrín

08.10.2008 19:20:46 / 15addyk

1. week

Hey jó!
Well...where to start?
Þá er ég komin aftur til tedrykkjulandsins og líkar bara vel;);)
Að vanda fljúga dagarnir áfram og nú þegar hef ég verið hér í um 1,5 viku! Skólinn er kominn á fullt og svo ég gefi ykkur smá dæmi um það sem að á daga mína hefur drifið þá tókum við rútuna til Loughton (gamli campus) í gær og fengum kennslu í saumaskap og lærðum ýmsar aðferðir til  að mála sviðsmyndir. Einnig erum við byrjuð á hönnunaverkefni. Markmiðið er að hanna búninga sem að byggja á frumefnunum í lotukerfinu. Söngleikur um einelti í Forum-theatre stíl er svo stærsta verkefnið sem að rannsóknavinna er hafin að. Og hlustið: við munum fara með sýninguna á flakk og sýna hana í grunnskólum í Essex héraði.
Svo að allt er bara ljómandi fínt, fyrir utan það að ég er enn ekki flutt í húsið mitt! En það mun gerast í næstu viku. Eftir rúma viku verð ég flutt inn í mitt cosy hús með 3 frábærum meðleigjendum. Sem stendur sef fæ ég að sofa í neðri koju hjá bekkjarsystur minni.
Sumarbúðafílingur!!!

Knús til ykkar
:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.09.2008 14:35:10 / 15addyk

Ég fer.. á sunnudaginn

Flug er áætlað frá Keflavíkurflugvelli, að morgni sunnudags kl. 08.00 til London, Stansted Airport.

Ég er búin að vera heima í 2 mánuði og hafa það alveg yndislegt!

En nú er kominn tími til að láta hendur standa fram úr ermum, halda vel á spöðunum, spýta í lófanna...hehe á ég að bæta við fleiri orðatiltækjum??:d og hefja ár númer tvö, og núna í: Southend on Sea! Strandarbær með meiru í Essex héraðinu.

Húsnæðið er komið, en ég get ekki flutt inn fyrr en 16.okt, svo að þangað til fæ ég að ''krassa'' á gólfinu hjá einhverjum hjálpfúsum.

Enn á ég tæpa 4 daga á Skaganum sem að ég ætla að nota vel:)

knus knus


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.09.2008 14:28:19 / 15addyk

Rain

Vá, loksins hefur stytt upp...í bili.
Það er kannski séns að ég komist út að hjóla með hundinn án þess að þurfa að galla mig upp í allt of stóran pollagalla;) (af föður mínum) .
Ég elska að hjóla upp að Akrafjalli. Við erum svo heppin hér á Íslandi hvað það er stutt í náttúruna. Á leiðinni ber fyrir augu: hesta, kindur, ár og fossa og ....ruslahauga.
Skuggi  missti sig í gleðinni um daginn og hljóp um eins og vitlaus og djöflaðist í me me sem að nú fylla túnin. Þær voru nú aldeilis ekki ánægðar með kallinn!
Annars þá eru þessar kindur skemmtulegir karakterar. Ég var eitthvað að fíflast í þeim um daginn, kallaði í þær og veifaði og þær góndu á mig eins og ég væri fílfl. Fleiri bættust í hópinn og þær stóðu þarna hnarreistar á hamrinum og svo löngu eftir að ég hjólaði af stað í áttina heim, er ég leit við, þá stóðu þær þarna enn.





» 0 hafa sagt sína skoðun

24.09.2008 14:27:01 / 15addyk

Rain

Vá, loksins hefur stytt upp...í bili.
Það er kannski séns að ég komist út að hjóla með hundinn án þess að þurfa að galla mig upp í allt of stóran pollagalla;) (af föður mínum) .
Ég elska að hjóla upp að Akrafjalli. Við erum svo heppin hér á Íslandi hvað það er stutt í náttúruna. Á leiðinni ber fyrir augu: hesta, kindur, ár og fossa og ....ruslahauga.
Skuggi missti sig í gleðinni og hljóp um eins og vitlaus og djöflaðist í me me sem að voru nú aldeilis ekki ánægðar með kallinn!
Annars þá eru þessar kindur skemmtulegir karakterar. Ég var eitthvað að fíflast í þeim um daginn, kallaði í þær og veifaði og þær góndu á mig eins og ég væri fílfl. Fleiri bættust í hópinn og þær stóðu þarna hnarreistar á hamrinum og svo löngu eftir að ég hjólaði af stað í áttina heim, er ég leit við, þá stóðu þær þarna enn.





» 1 hafa sagt sína skoðun

08.09.2008 14:33:36 / 15addyk

At the tourist info


5. vinnudagurinn í röð og ég held sönsum.
Nú fer að styttast í að ég yfirgefi klakann á ný og haldi til Southend on Sea.
Mig er farið að klæja í fingurgómana mig hlakkar svo til að takast á við ný verkefni..
Eini kvíðahnúturinn er húsnæðishnúturinn.. en ég á hvergi heima! Maður er einhvern veginn mitt á milli tveggja landa, og í hvoru landinu á milli tveggja bæja.l...hahahaha
þetta er skondið þetta líf.

knúsir mínar músir
kveðja af uppló

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2008 22:49:27 / 15addyk

Í útilegu!

Þá er komið að því...stelpan mun halda út á land síðdegis á morgun. Enn er óákveðið hvert skal halda; norður, suður, austur eða vestur, það verður bara allt að ráðast þegar allir verðar sestir og með beltin spennt, með góða tónlist í tækinu og komin í túttur og lopasokka.
Nú skal taka eina væna versló, eitthvað  sem að hefur ekki gerst hjá snótinni í áraraðið.
Alltaf hefur mér tekist að vera í vinnu eða stödd í öðru landi.

Eigið góða helgi- gangið varlega um gleðinnar dyr!
knus og kys
Addý


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.07.2008 14:21:26 / 15addyk

Morgunstund með Villa Vill

Sæl og bless!
Varð bara að deila með ykkur notalegri morgunstund. Ég held að það toppi ekkert það að vakna í nýju rúmi í sólskinsbjörtu herbergi í kyrrð og ró. Drattast á fætur setja Villa Vill á fóninn, hella á kaffi og dansa um stofuna. Enginn heima og vel hægt að fríka út;)
Ég mæli eindregið með þessu!
SOS..ástin ein, ein þú getur bjargað mér...SOS,aðra leið..aldrei hjarta mitt að landi ber.....
Lítill drengur..
Hrafninn...
Álftarós...

Ég elska Villa Vill. Hann hressir, bætir og kætir.

kossar
Drea


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.07.2008 16:03:20 / 15addyk

Í heilu lagi

Jæja krakkar mínir.
Þessi mission impossible varð að mission possible. Hér er ég á ný í græna sófanum, en ekki umkringd kössum og drasli eins og síðast. Allt er komið til Derby.
Ferðalagið gekk s.s upp og var bara stuð hjá okkur á leiðinni...ég held að sumir hafi haldið að við værum létt klikkaðar. Lee-N fílaði sig í botn við stýrið og sýndi snilldartilþrif!!
Hehee, en náði að reka hliðarspegilinn í hliðarspegilinn á öðrum bíl...en allt fór vel8|8|
Við gistum svo í Derby þar sem að við vorum alveg búnar á því...en áður en lagst var til rekkju renndum við niður ég veit ekki hversu mörgum organic-pulsum í brauði með hrásalati og crips. NAMM... var búin að gleyma hvað grillaðar pulsur eru góðar!
Í morgun vöknuðum við svo kl. 06 GÓÐAN DAGINN og lögðum af stað með fullan sendibíl af fiskafóðri sem að við keyrðum inn til London þar sem að Mr. Che tók við og borgaði vel fyrir...Ég tel það með ólíkindum að við Lee-N skildum hafa ratað...en reyndar með hjálp Navigator system. Snilldar uppfinning það! En Gaby varð eftir í Derby svo að við urðum bara að redda þessu öllu og skila flutningabílnum í síðasta lagi kl. 11 í morgun. Og það tókst! Jey! Og þrátt fyrir að hafa villt rétt í lokin þar sem að pabbi Gaby forritaði navigatorinn vitlaust.. við enduðum í 'Dead End' kl. 15 mín fyrir 11!! og þurftum þá að beita innsæi og þiggja hjálp innfæddra til að komast til Chingford Road og skila flutningabílnum og auk þess þurftum við að fylla tankinn af rándýrri diesel olíu....
Hummmmmmmmm mikið er mér létt að þessu skuli vera lokið.
Nú er bara að koma sér í flug og anda léttar...en þó ekki of létt því að ég þarf að undirbúa leiðsögn fyrir Mývatnsferð á mánudag....my god...flug kl. 7.20 til Akureyrar.
Ég verð nú létt steikt. Ætli ég verði ekki bara með nett uppistand fyrir heldri fransmennina sem að fylla munu rútu nr. 4.
jæja, ætla að hætta þessu bulli í bili
sé ykkur
knús
A


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.07.2008 17:32:34 / 15addyk

Pakkað ofan í kassa

Hæ hæ öll sömul.
Nú sit ég hér í græna sófanum, lúin með kaffi í hönd og búin að renna niður síðasta tekexinu með osti ofan á.
Töskur og kassar og plastpokar umkringja mig og reggie fm hljómar í eyrum mér.
Á morgun er stóri dagurinn.. en þá ætlum við Gaby að keyra öllu draslinu til Derbyshire þar sem að það mun bíða okkar fram til miðs september.
Ekki er laust við það að smá kvíðahnútur geri vart við sig þar sem að aldrei áður hef ég keyrt á breskum þjóðvegi eða þar af heldur ''van''...þeir sem að til mín þekkja kannast við færni mína á íslenskum vegum, sem að verður að segjast í meðallagi..:s:s
En vafalaust verður þetta heljarinnar ævintýr og ætlar knáa stelpan frá Möltu að slást í för með okkur gellum þar sem að hún er í fyrsta lagi þrælsterk og getur hjálpað okkur að drösla dýnum, skrifborðum, náttborði, pokum og sekkjum og pappakössum úr sendibíl og yfir í fiskihúsið hans Mr. Barnes, og í annan stað segist hún vera mikill reynslubolti í akstri ökutækja á ''röngum'' vegarhelming:d
Anyway....flug mitt til Íslands er á föstudag og ef með hjálp góðra anda þá ætti okkur að takast þessir flutningar slysalaust fyrir sig.

Góðar fréttir eru þær að líklega þá er ég komin með húsnæði fyrir næsta skólaár í Southend-on-Sea.  14, Napier Avenue is the address!! Ég krossa enn sem komið er fingurna og vona að öll pappírsvinna gangi snuðrulaust fyrir sig. Heppni skiptir öllu í þessu máli sem og mörgum öðrum!

Love you all, and see you soon in Akranes-Kópavogur- Reykjavík City Center!
Bisous
Drea


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.07.2008 19:50:46 / 15addyk

Komin 1/2 úr karakter

;)
Sæl!
Nú fer þessu skólaári senn að ljúka, bara lokaspretturinn eftir... og ég get ekki neitað því að ég verð óneitanlega fegin þegar því lýkur. Það er kominn tími á smá frí frá leiklistinni..

Í morgun vaknaði ég eftir langan draum um Ísrael og gyðinga og palestínumenn og grjót og riffla og cous-cous og hummus og olífutré og hebres orð og check-point og patroling og settlers og tjöld og shalom og sárabindi og slysabörur og tár og hlátur og skammaryrði og kaffi og marseringar og sól og hita og ryk og rigningardropa og mosku og torah og hjólbörur og ... og ... og...endlaust gæti ég talið upp. Það er ekki furða að eftir að hafa verið í karakter í 9 daga frá kl. 9.30 á morgnanna og til ca. 18 síðdegis að það taki mann smá tíma að verða maður sjálfur aftur. Í morgun þegar ég vaknaði þá var ég enn að hluta til Maya Stavi, private no. 01234137!!!

Þessum risa-spuna lýkur á þriðjudaginn og ég vona af öllu hjarta að allir haldi geðheilsunni þangað til!! Þetta er helvíti intense en að sama skapi alveg ofboðslega gaman!

En ég hlakka alveg svakalega til að koma heim í heiðardalinn og byrja að vinna á Tourist Information í Reykjavík, búa hjá Bjarka og Fríðu skötuhjúum, borða grillaðan fisk og drekka fullt af coca light að Jörundarholti 228!

Og að sjálfsögðu að hitta ykkur öll!!!
Knús og þúsund kossar



» 1 hafa sagt sína skoðun

20.06.2008 11:41:09 / 15addyk

Israeli Soldier

Jæja, þá er að það komið á hreint. Ég á að leika ísraelska konu í hernum í Living History. Síðustu dagar hafa einkennst af heimildaöflun um sögu Ísrael frá tímum gamla testamenntisins og fram til okkar tíma. Svo var okkur skipt í tvo hópa: gyðinga og íslama og svo var þessum tveimur hópum skipt í fleiri hópa. Á þriðjudaginn kemur hefst þetta allt saman. Nú er ég komin með lista af dóti og fatnaði sem að ég þarf að afla mér..límband og skrifblokk og þykkir sokkar...allt make-up er bannað, bakpoki og vatnsbrúsi er nauðsyn... Við verðum í herþjálfun...eigum að setja upp búðir...þetta verður spennandi og klikkað í senn. Í tvær vikur verð ég í karakter frá kl. 9 á morgnanna og til kl. 18....já, ég svitna bara.
Ég er búin að velja mér nafn á karakterinn og nú í dag gefa kennararnir mér 3 persónueinkenni sem að ég á að byggja karakterinn á...
I'll keep you posted!

Shalom!



» 0 hafa sagt sína skoðun

15.06.2008 22:41:36 / 15addyk

Fascinating Rhythm!

Hæ!
Afsakið hlé!
Mikið afskaplega er langt síðan að ég hef hripað niður einhver orð...
En ástæðan er einföld. Þessi önn hefur verið ein geðveiki! En ég ætla að láta duga að gefa ykkur nokkur dæmi um hvað hefur gerst í lífi mínu hér í Loughton:

1. Mamma mín kom í heimsókn til mín og við sáum Celine Dion á tónleikum! Once in a lifetime!!
2. Ég lék í fyrsta sinn karlmann í leikritinu The Malcontent. Hef aldrei leikið eins eigingjarna og illgjarna týpu á ævinni. Þetta var allt mjög athyglisvert...
3. Söng og dansaði í laginu Fascinating Rhythm. Þetta var mikil vinna fyrir hópinn minn, við fengum flóknasta lagið af  öllum, en þetta var ógeðslega gaman!!
4.Á sunnudögum förum við Gaby í göngutúr út í skóg. Þar hittum við Rebba og föðmum tré!
5. Lýsi og fiskur. Hollustan er í fyrirrúmi hjá mér þessa daganna.
6. Rough and Ready Man var solo lagið mitt. Blúsað lag og kom karakterinn minn öllum í grúví fíling.
7.Research..research.. þessi önn hefur snúist um heimildaöflun...og því er ekki lokið enn..þessa daganna les ég allt sem ég get um Ísrael og Palestínu. Living History Project verður okkar siðasta project á þessu skólaári...

Ble ble ble


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 08:03:23 / 15addyk

Dekurdrós

:lol:

Ég held að ég sé að breytast í dekurdrós! Jamm...nú er ég búin að skella mér í fótsnyrtingu og á pantaðann tíma í andlitsbað á mánudagsmorgunn. Svo fórum við Adda, Ísleifur og mamma í Bláa Lónið.  Já og svo verð ég að segja ykkur frá dekrinu sem að ég og mamma fengum á laugardaginn. Við skelltum okkur í Hreysti í slökunarnudd. Vá, þvílíkt næs!! Við vorum svo slakar þegar við komum út að við yrtum ekki á hvor aðra, heldur brostum bara;););)
Síðan fórum við í heitan pott með jarðsjó og gufu.
Aðstaðan er frábær. Snyrtiborð, með risaspeglum,sléttujárni og allar græjur! Eftir dekrið fengum við okkur salat með túnfisk og sólþurrkuðum tómötum og síðan var haldið i Kringluna til að versla.

Já, lífið er yndislegt!

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.04.2008 13:54:08 / 15addyk

Stóra planið

Hey hey!

*Fór á Stóra planið á sunnudaginn. Alveg ágætis mynd þannig. Ég viðurkenni þó að hafa orðið fyrir smá vonbrigðum. Nokkrar mjög góðar senur með Eggert Þorleifs, sem að sló í gegn fannst mér. Og nokkrar mjög fyndnar með Pétri. Hann kom vel út úr þessari mynd. En eitthvað var Ingvar ekki að finna sig fannst mér sem foringi handrukkaragengisins...

Fín mynd til að leigja bara og horfa á heima í stofu...

Hins vegar þá sá ég Sólarferð í Þjóðleikhúsinu á laugardaginn var og var það hin besta skemmtun. Þar fór Ingvar minn á kostum klárlega sem og Ólafía Hrönn sem týpísk íslensk hjón sem að skella sér til Costa Del Sol.
Þau tvö héldu leikritinu uppi, aðrir komumst ekki með tærnar þar sem að þau höfðu hælana..

Það er aftur að koma helgi ...
Njótið!
Koss á kinn
Drea

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 08:07:13 / 15addyk

Bakstur

Sæl verið þið.
Ég var svo dugleg í gær að það hálfa væri hellingur..heh.
Haldiði ekki að ég hafi skellt í skúffuköku!! Namm namm.. algert gúmmulaði með ískaldri mjólk.

Fór einnig í ræktina..mikið djöf..er orðið dýrt! 340 kall skiptið á hlaupabrettið. Ussu Suss!

Annars þá er helgin framundan. Leikhús á morgun og dinner á 101 Hótel. Can't Wait. Ritgerðaskrif...bíða og bíða..en jæja, heimildaöflun er hafin..

Segi þetta gott í bili. Það er árla morguns. Kaffið er farið að virka og ég þarf að fara að vinna eitthvað..sækja vörur fyrir kallana..
Heyrumst;);)

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 22474
Dagsetning
9. febrúar 2010
Leitarbox