
Hæ
Ég held að ég sé að breytast í dekurdrós! Jamm...nú er ég búin að skella mér í fótsnyrtingu og á pantaðann tíma í andlitsbað á mánudagsmorgunn. Svo fórum við Adda, Ísleifur og mamma í Bláa Lónið. Já og svo verð ég að segja ykkur frá dekrinu sem að ég og mamma fengum á laugardaginn. Við skelltum okkur í Hreysti í slökunarnudd. Vá, þvílíkt næs!! Við vorum svo slakar þegar við komum út að við yrtum ekki á hvor aðra, heldur brostum bara



Síðan fórum við í heitan pott með jarðsjó og gufu.
Aðstaðan er frábær. Snyrtiborð, með risaspeglum,sléttujárni og allar græjur! Eftir dekrið fengum við okkur salat með túnfisk og sólþurrkuðum tómötum og síðan var haldið i Kringluna til að versla.
Já, lífið er yndislegt!