Drea's Diary

Andrea Katrín

31.12.2007 14:40:36 / 15addyk

Á Áramótum

Fiðringur gerir vart við sig. Ég er spennt fyrir því nýja og óvænta. Ég sit í vinnunni, hér er friður og ró, brjálað veður úti svo að enginn vogar sér út fyrir hússins dyr. Útvarpið er í gangi, auglýsingar, raddir pólitíkusa og spámanna. Spurningar dagsins: Hvernig var árið 2007 og hvað ber nýtt ár 2008 í skauti sér?? Ég velti því einnig fyrir mér. Sumt er fyrirséð en svo margt ófyrirséð...

Ég hlakka til að sjá skaupið í kvöld...Ætli ég verði með alla brandarana á hreinu?? Svo er það hin margumrædda auglýsing... ætli ég noti ekki hléið þakklát og fái mér meiri ís í skál og jarðaber.  Harðfiskur og jólabjór. Svo mun ég skjóta upp flugeldum..eða ekki ef að veðurspáin rætist. Svona er Ísland í hnotskurn og ég dýrka það vegna þessa--veðrið óútreiknanlegt.

Í fyrramálið vakna ég svo á hreinasta morgni sem hugsast getur. Nýtt ár byrjað..nýtt upphaf.

Gleðilegt ár öll saman og takk fyrir það gamla. Megi nýtt ár færa ykkur gleði og gæfu.

Ykkar

Drea

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 17:07:45 / 15addyk

Notting Hill

Hæ og hó!

Jæja, þá er loksins helgi og annasamri viku lokið...ég hef hangið inni í allan dag... bara að chilla þið vitið... engin heimavinna þessa helgina og maður getur bara gert allt sem að mann langar til...

Notting Hill í kvöld. Já, Mike og kærasta eru í heimsókn hér og er ég að fara með þeim í afmælisboð á bar í Notting Hill. 

Camden á morgun. Maður þarf víst að gera einhver jólainnkaup og besta að skella sér á alvöru markað til þess!!

Æi, veit ekki hvað ég á að segja meira... Er alveg súper-chilluð eitthvað.

Að lokum:

Hafið það gott

Farið varlega

Elskið friðinn-strjúkið kviðinn

Ble Ble

Drean;);););) 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 22922
Dagsetning
21. mars 2010
Leitarbox