Sælt veri
fólkið. Nýjustu fréttir eru þær að Orange Livebox er
komið í gagnið hér á rue de Chazelles. Hvítt kvikindi sem að
í tengjast alls konar snúrur, m.a símasnúrur og filtrar,
fjarstýring og sími og ji! ég veit ekki hvað og hvað... Nú
hef ég einhverjar billjón sjónvarpstöðvar til að glápa á og
símtæki sem að ég get talað ''illimite'' þ.e ótakmarkað
í hér innan franskra landamæra. Ég held að óhætt sé að
segja að Drean sé orðin netvædd og... þráðlaus. Jú,
auðvitað vel ég þægindin, og fæ mér Þráðlaust fyrir
stúdíóíbúðina mína, rúmgóðu og þægilegu.
Var að vakna fyrir ekki svo löngu..
mikið er nú næs að ræsa tölvuna og kíkja á mbl.is á nýjustu
fréttir, hita sér kaffibolla, narta í epli og byrja daginn á nettu
vafri....
svona fyrir amstur dagsins, sem að verður þó
nokkuð..
La vita e bella (er þetta rétt
skrifað
)
Morgunstund gefur gull í mund (segir
nátthrafninn...)
Drea