Drea's Diary

Andrea Katrín

31.07.2008 22:49:27 / 15addyk

Í útilegu!

Þá er komið að því...stelpan mun halda út á land síðdegis á morgun. Enn er óákveðið hvert skal halda; norður, suður, austur eða vestur, það verður bara allt að ráðast þegar allir verðar sestir og með beltin spennt, með góða tónlist í tækinu og komin í túttur og lopasokka.
Nú skal taka eina væna versló, eitthvað  sem að hefur ekki gerst hjá snótinni í áraraðið.
Alltaf hefur mér tekist að vera í vinnu eða stödd í öðru landi.

Eigið góða helgi- gangið varlega um gleðinnar dyr!
knus og kys
Addý


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.07.2008 14:21:26 / 15addyk

Morgunstund með Villa Vill

Sæl og bless!
Varð bara að deila með ykkur notalegri morgunstund. Ég held að það toppi ekkert það að vakna í nýju rúmi í sólskinsbjörtu herbergi í kyrrð og ró. Drattast á fætur setja Villa Vill á fóninn, hella á kaffi og dansa um stofuna. Enginn heima og vel hægt að fríka út;)
Ég mæli eindregið með þessu!
SOS..ástin ein, ein þú getur bjargað mér...SOS,aðra leið..aldrei hjarta mitt að landi ber.....
Lítill drengur..
Hrafninn...
Álftarós...

Ég elska Villa Vill. Hann hressir, bætir og kætir.

kossar
Drea


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.07.2008 16:03:20 / 15addyk

Í heilu lagi

Jæja krakkar mínir.
Þessi mission impossible varð að mission possible. Hér er ég á ný í græna sófanum, en ekki umkringd kössum og drasli eins og síðast. Allt er komið til Derby.
Ferðalagið gekk s.s upp og var bara stuð hjá okkur á leiðinni...ég held að sumir hafi haldið að við værum létt klikkaðar. Lee-N fílaði sig í botn við stýrið og sýndi snilldartilþrif!!
Hehee, en náði að reka hliðarspegilinn í hliðarspegilinn á öðrum bíl...en allt fór vel8|8|
Við gistum svo í Derby þar sem að við vorum alveg búnar á því...en áður en lagst var til rekkju renndum við niður ég veit ekki hversu mörgum organic-pulsum í brauði með hrásalati og crips. NAMM... var búin að gleyma hvað grillaðar pulsur eru góðar!
Í morgun vöknuðum við svo kl. 06 GÓÐAN DAGINN og lögðum af stað með fullan sendibíl af fiskafóðri sem að við keyrðum inn til London þar sem að Mr. Che tók við og borgaði vel fyrir...Ég tel það með ólíkindum að við Lee-N skildum hafa ratað...en reyndar með hjálp Navigator system. Snilldar uppfinning það! En Gaby varð eftir í Derby svo að við urðum bara að redda þessu öllu og skila flutningabílnum í síðasta lagi kl. 11 í morgun. Og það tókst! Jey! Og þrátt fyrir að hafa villt rétt í lokin þar sem að pabbi Gaby forritaði navigatorinn vitlaust.. við enduðum í 'Dead End' kl. 15 mín fyrir 11!! og þurftum þá að beita innsæi og þiggja hjálp innfæddra til að komast til Chingford Road og skila flutningabílnum og auk þess þurftum við að fylla tankinn af rándýrri diesel olíu....
Hummmmmmmmm mikið er mér létt að þessu skuli vera lokið.
Nú er bara að koma sér í flug og anda léttar...en þó ekki of létt því að ég þarf að undirbúa leiðsögn fyrir Mývatnsferð á mánudag....my god...flug kl. 7.20 til Akureyrar.
Ég verð nú létt steikt. Ætli ég verði ekki bara með nett uppistand fyrir heldri fransmennina sem að fylla munu rútu nr. 4.
jæja, ætla að hætta þessu bulli í bili
sé ykkur
knús
A


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.07.2008 17:32:34 / 15addyk

Pakkað ofan í kassa

Hæ hæ öll sömul.
Nú sit ég hér í græna sófanum, lúin með kaffi í hönd og búin að renna niður síðasta tekexinu með osti ofan á.
Töskur og kassar og plastpokar umkringja mig og reggie fm hljómar í eyrum mér.
Á morgun er stóri dagurinn.. en þá ætlum við Gaby að keyra öllu draslinu til Derbyshire þar sem að það mun bíða okkar fram til miðs september.
Ekki er laust við það að smá kvíðahnútur geri vart við sig þar sem að aldrei áður hef ég keyrt á breskum þjóðvegi eða þar af heldur ''van''...þeir sem að til mín þekkja kannast við færni mína á íslenskum vegum, sem að verður að segjast í meðallagi..:s:s
En vafalaust verður þetta heljarinnar ævintýr og ætlar knáa stelpan frá Möltu að slást í för með okkur gellum þar sem að hún er í fyrsta lagi þrælsterk og getur hjálpað okkur að drösla dýnum, skrifborðum, náttborði, pokum og sekkjum og pappakössum úr sendibíl og yfir í fiskihúsið hans Mr. Barnes, og í annan stað segist hún vera mikill reynslubolti í akstri ökutækja á ''röngum'' vegarhelming:d
Anyway....flug mitt til Íslands er á föstudag og ef með hjálp góðra anda þá ætti okkur að takast þessir flutningar slysalaust fyrir sig.

Góðar fréttir eru þær að líklega þá er ég komin með húsnæði fyrir næsta skólaár í Southend-on-Sea.  14, Napier Avenue is the address!! Ég krossa enn sem komið er fingurna og vona að öll pappírsvinna gangi snuðrulaust fyrir sig. Heppni skiptir öllu í þessu máli sem og mörgum öðrum!

Love you all, and see you soon in Akranes-Kópavogur- Reykjavík City Center!
Bisous
Drea


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.07.2008 19:50:46 / 15addyk

Komin 1/2 úr karakter

;)
Sæl!
Nú fer þessu skólaári senn að ljúka, bara lokaspretturinn eftir... og ég get ekki neitað því að ég verð óneitanlega fegin þegar því lýkur. Það er kominn tími á smá frí frá leiklistinni..

Í morgun vaknaði ég eftir langan draum um Ísrael og gyðinga og palestínumenn og grjót og riffla og cous-cous og hummus og olífutré og hebres orð og check-point og patroling og settlers og tjöld og shalom og sárabindi og slysabörur og tár og hlátur og skammaryrði og kaffi og marseringar og sól og hita og ryk og rigningardropa og mosku og torah og hjólbörur og ... og ... og...endlaust gæti ég talið upp. Það er ekki furða að eftir að hafa verið í karakter í 9 daga frá kl. 9.30 á morgnanna og til ca. 18 síðdegis að það taki mann smá tíma að verða maður sjálfur aftur. Í morgun þegar ég vaknaði þá var ég enn að hluta til Maya Stavi, private no. 01234137!!!

Þessum risa-spuna lýkur á þriðjudaginn og ég vona af öllu hjarta að allir haldi geðheilsunni þangað til!! Þetta er helvíti intense en að sama skapi alveg ofboðslega gaman!

En ég hlakka alveg svakalega til að koma heim í heiðardalinn og byrja að vinna á Tourist Information í Reykjavík, búa hjá Bjarka og Fríðu skötuhjúum, borða grillaðan fisk og drekka fullt af coca light að Jörundarholti 228!

Og að sjálfsögðu að hitta ykkur öll!!!
Knús og þúsund kossar



» 1 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 22922
Dagsetning
21. mars 2010
Leitarbox